02. apríl 2024
Fréttir
Auglýst er eftir sérkennslustjóra og deildarstjóra til starfa í 80- 100% stöður við leikskólann Heklukot á Hellu í Rangárþingi Ytra
Við erum Skóli á grænni grein og einnig er unnið eftir markmiðum Heilsustefnunnar sem stuðlar að heilsueflingu í leikskólasamfélaginu með áherslu á næringu, hreyfingu og listsköpun í leik.
Unnið eftir starfslýsingu Félags leikskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Kröfur um menntun, hæfni og reynslu:
- leyfisbréf kennara eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
- reynsla af sérkennslu
- sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- góð íslenskukunnátta
- góð tölvukunnátta
Umsókn og ferilskrá óskast send á netfangið inga@heklukot.is Nánari upplýsingar veitir Ingigerður Stefánsdóttir leikskólastjóri í síma 488-7045. Upplýsingar um skólann er að finna á www.heklukot.is.
Umsóknarfrestur er til 16. apríl 2024.