09. maí 2022
Fréttir
Miðvikudagskvöldið 11. maí n.k. standa framboðslistar Á og D, sem bjóða fram í sveitarstjórnarkosningum 14. maí n.k. í Rangárþingi ytra fyrir sameiginlegum framboðsfundi í íþróttahúsinu á Hellu og hefst fundurinn kl. 20.
Á fundinum munu framboðin kynna stefnumál sín og svara spurningum fundarmanna.
Allir íbúar Rangárþings ytra eru eindregið hvattir til að mæta.
Streymt verður frá fundinum.
Umboðsmenn Á- og D-lista í Rangárþingi ytra.