Rangárþing ytra auglýsir starf verk- og flokksstjóra vinnuskóla

Starf verkstjóra fellur undir sviðstjóra eigna og framkvæmdasviðs og samræmir störf flokksstóra vinnuskólans.

Helstu verkefni:

  • Að halda utan um og skipuleggja verkefni vinnuskólans.
  • Samræma vinnu flokksstjóra og er tengiliður við foreldra.
  • Ber ábyrgð á tímaskráningum til launafulltrúa ásamt öðru sem snýr að rekstri vinnuskólans.

Starf flokksstjóra fellur undir starf verkstjóra.

Helstu verkefni:

  • að hafa umsjón með og verkstýra unglingum á aldrinum 13 – 16 ára við margvísleg umhverfistengd verkefni.

Hæfniskröfur.

Æskilegt er að floksstjóri hafi náð 18 ára aldri en verkstjóri sé eldri en tvítugur. Báðir aðilar þurfa að vera góðar fyrirmyndir, lausnamiðaðir, skipulagðir, með góða samskiptahæfni ásamt því að hafa góða stjórnunarhæfileika. Bílpróf er skilyrði

Rangárþing ytra hvetur konur jafnt sem karlmenn til að sækja um þessi störf. Starfstími er fá miðjum maí og út ágúst.

Upplýsingar gefur Tómas Haukur Tómasson tomas@ry.is eða í síma 8946655

Umsóknir skal senda á tomas@ry.is 

Sækja um!

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?