Rangárþing ytra tekur þátt í lýðheilsugöngum Ferðafélags Íslands í september.
Göngurnar eru fyrir alla fjölskylduna og eru á miðvikudögum kl. 18:00.
Ganga 1 - Gunnlaugsskógur
Miðvikudagurinn 5. september kl. 18:00
Gangan hefst: Á planinu við litlu Heklu í Gunnarsholti.
Göngustjóri: Elín Fjóla Þórarinsdóttir
Ganga 2 - Gíslholtsfjall
Miðvikudagurinn 12. september kl. 18:00
Gangan hefst við: Bæjarhlaðið í Gíslholti.
Göngustjóri: Sverrir Kristinsson
Ganga 3 - Þykkvibær; Djúpósstífla og niður með ánni.
Miðvikudagurinn 19. september kl. 18:00
Gangan hefst við: Djúpósstíflu
Göngustjóri: Birna Guðjónsdóttir
Ganga 4 - Ægissíðufoss
Miðvikudagurinn 26. september kl. 18:00
Gangna hefst við: Miðjuna á Hellu
Göngustjóri: Inga Heiðarsdóttir
Lifum og njótum!
Heilsu-, íþrótta- og tómstundanefnd
Rangárþingi ytra