Lífshlaupið, heilsu- og hvatningarverkefni ÍSÍ, verður ræst í sjöunda sinn miðvikudaginn 5. febrúar 2014.
Lífshlaupið höfðar til allra landsmanna og gefst þátttakendum kostur á að taka þátt í vinnustaða-, grunnskóla- ogeinstaklingskeppni, þar sem hver og einngetur skráð inn sína hreyfingu allt árið.
Við hvetjum alla landsmenn tilþess að taka þátt í Lífshlaupinu.
Opnaðhefur veriðfyrir skráningu vinnustaða, grunnskóla og einstaklinga áwww.lifshlaupid.is.
NÝTT – fleiri valmöguleikar við skráningu. Nú getur einn aðili séð um að skrá mörg lið til leiks og einnig er hægt að velja á milli þess að skrá alla starfsmenn í sama liðið eða setja upp liðakeppni innan vinnustaðarins.
Þeir sem hafa áhuga á því að fá send veggspjöld geta sent tölvupóst á lifshlaupid@isi.is.
Smelltu hér og kynntu þér málið betur.
Íþrótta- og ÓlympíusambandÍslands
Almenningsíþróttasvið
lifshlaupid@isi.is