30. ágúst 2014
Fréttir
Leikskólastjóri
Leikskólinn Heklukot á Hellu óskar eftir leikskólastjóra.
Heklukot er þriggja deilda leikskóli með um 65 nemendur.
Á Heklukoti er unnið eftir stefnu Grænfánans og Heilsustefnunnar. Aðstaða skólans er mjög góð og mikil áhersla lögð á að vinna gæðastarf með börnum. Heklukot hlaut Menntaverðlaun Suðurlands 2013 fyrir öflugt samstarf við foreldra.
Upplýsingar um leikskólann má finna á heimasíðu skólans:
Við leitum að einstaklingi sem
• er með leikskólakennaramenntun ásamt framhaldsmenntun á sviði stjórnunar.
• hefur kennslureynsla úr leikskóla eða reynslu af stjórnun leikskóla.
• sýnir frumkvæði, metnað og sjálfstæði í starfi ásamt skipulagshæfni.
• býr yfir hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum.
Umsóknir, ásamt ferilskrá og meðmælendum, berist til sveitastjóra á netfangið: agust@ry.is
eða á skrifstofu sveitarfélagsins Rangárþing ytra, Suðurlandsvegi 1-3 , 850 Hellu merkt
„Leikskólastjóri Heklukot“ fyrir 8. September. Nánari upplýsingar hjá Ágústi Sigurðssyni sveitarstjóra í síma 488 7000.