09. maí 2022
Fréttir
Lausar eru til umsóknar stöður kennara og sérkennara/iðjuþjálfa/þroskaþjálfa við Laugalandsskóla í Holtum, Rangárþingi ytra, skólaárið 2022-2023.
Um er að ræða kennslu á öllum stigum t.d. í eftirtöldum greinum skólaíþróttir, sérkennsla, tónmennt, upplýsingamennt og náttúrfræði.
Æskilegt er að umsækjendur hafi kennsluréttindi, góða skipulagshæfileika og hæfni í mannlegum samskiptum.
Laugalandsskóli er í um 100 km fjarlægð frá Reykjavík.
Umsóknarfrestur er til 24. maí 2022
Veffang: http://www.laugaland.is
Netfang: laugholt@laugaland.is
Upplýsingar veitir skólastjóri í gsm. 862-9530