06. maí 2024
Fréttir
Grunnskólinn Hellu auglýsir eftir umsjónarkennurum og textílkennara fyrir skólaárið 2024-2025
Lausar eru stöður umsjónarkennara á yngsta- og miðstigi. Þá er laus staða textílkennara í 25% starf.
Hæfniskröfur
- Kennararéttindi eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Kennslureynsla æskileg
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Í Grunnskólanum Hellu verða u.þ.b. 170 nemendur í 1.-10. bekk skólaárið 2024-2025.
Frekari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðu hans http://grhella.is
Vinsamlegast hafið samband við undirrituð til að fá frekari upplýsingar:
- Kristín Sigfúsdóttir, skólastjóri, á netfang kristins@grhella.is eða í síma 488 7021 / 663 6217
- Kristinn Ingi Austmar Guðnas., á netfang kristinn@grhella.is eða í síma 488 7022 / 8481467
Umsóknarfrestur er til 17. maí 2024
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Störfin henta jafnt konum sem körlum.