Varðstjóri Brunavarna Rangárvallasýslu bs.
Brunavarnir Rangárvallasýslu bs. auglýsa stöðu varðstjóra Brunavarna Rangárvallasýslu bs. með aðsetur á Hellu lausa til umsóknar.
Um er að ræða 20% stöðu varðstjóra sem tekur að sér bakvaktir, ásamt öðrum slökkviliðsmönnum sem til þess eru valdir.
Launakjör samkvæmt kjarasamningum Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.
Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi reynslu af starfi í slökkviliði.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf um miðjan mars 2015.
Umsóknarfrestur er til 5. mars 2015. Umsóknum, ásamt upplýsingum um reynslu og menntun, skal skilað rafrænt á póstfangið agust@hvolsvollur.is
Nánari upplýsingar veita Ágúst Ingi Ólafsson sími: 488-4200 og Ágúst Sigurðsson sími: 488-7000.
Brunavarnir Rangárvallasýslu bs.