AÐALSKIPULAG RANGÁRÞINGS YTRA 2016-2028
Kynningarfundur í Safnaðarsal Oddasóknar við Dynskála 8 á Hellu
fimmtudaginn 14. desember nk. kl. 16:00 - 19:00
Rangárþing ytra hefur unnið að endurskoðun aðalskipulagsins og er vinna við það langt komin.
Í aðalskipulagi er mörkuð stefna sveitarstjórnar um landnotkun til framtíðar og tekur hún til alls lands innan sveitarfélagsins. Í aðalskipulagi er sett fram stefna og ákvarðanir sveitarstjórnar um framtíðarnotkun lands og fyrirkomulag byggðar.
Í tengslum við endurskoðun aðalskipulagsins hefur verið lögð megináhersla á orkumál í sveitarfélaginu ásamt því að kaflinn um ferðamál hefur verið endur skilgreindur. Niðurstaða þeirrar vinnu verður einnig kynnt.
Fimmtudaginn 14. desember 2017 verður opið hús þar sem íbúar og hagsmunaaðilar geta skoðað aðalskipulagstillöguna og rætt við skipulagsfulltrúa, skipulagsráðgjafa og fulltrúa sveitarstjórnar í skipulagsnefnd.
Með von um að sem flestir sjái sér fært að mæta.
Fyrir hönd skipulagsnefndar Rangárþings ytra
Haraldur Birgir Haraldsson
skipulagsfulltrúi.