15. nóvember 2024
Fréttir
ATHUGIÐ - NÝ DAGSETNING - 11. JANÚAR 2025
Rangárþing ytra býður eldri borgurum til kaffisamsætis að Laugalandi í Holtum 11. janúar næstkomandi kl. 14:00.
Í boði verður ekta kvenfélagskaffi að hætti Kvenfélagsins Einingar, tónlistaratriði og spjall auk þess sem samborgari Rangárþings ytra 2024 verður útnefndur.
Fulltrúar sveitarfélagsins verða á staðnum til skrafs og ráðagerða og hlakka til að taka spjallið við heldri borgara.
Þau sem þurfa akstur frá Hellu eða Þykkvabæ þurfa að hafa samband og skrá sig, annað hvort með því að senda tölvupóst á osp@ry.is eða hringja í síma 4887000 og gefa upp nafn og heimilisfang.
Hlökkum til að sjá sem flest.