Hvassar brúnir við gatnamót Þingskála og Dynskála

Búið er að opna gatnamót Þingskála og Dynskála á Hellu að nýju en þjónustumiðstöð brýnir fyrir fólki að aka varlega um þau þar sem hvassar brúnir eru enn til staðar.

Malbikað verður við fyrsta tækifæri en þangað til er nauðsynlegt að aka hægt um svæðið og fara að öllu með gát.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?