06. nóvember 2024
Fréttir
Bjargshverfið verður nýtt hverfi á Hellu, vestan Rangár. Gert er ráð fyrir allt að 100 íbúðaeiningum af mismunandi tegundum; einbýlis-, par- og raðhúsum.
Nú leitum við til íbúa um hugmyndir að götuheitum í nýja hverfinu en skipulag þess má sjá á meðfylgjandi myndum.
Tillögum má skila inn á þrenna vegu:
- Með því að fylla út þetta eyðublað
- Með því að senda tillögur á netfangið ry@ry.is með „Hugmyndasamkeppni um götuheiti í Bjargshverfi“ í efnislínu
- Með því að skila tillögum í umslagi í afgreiðslu skrifstofu sveitarfélagsins að Suðulandsvegi 1–3
Frestur til að skila inn tillögum er til 19. nóvember næstkomandi og unnið verður úr innsendum tillögum á fundi skipulags- og umferðarnefndar 21. nóvember.