13. mars 2023
Fréttir

Hella
Héraðsnefnd Rangæinga auglýsir eftir umsóknum um styrki til menningaruppbyggingar í Rangárvallasýslu.
Skilyrði er að verkefnin sem sótt er um tengist uppbyggingu á menningarlegum arfi eða verðmætum í Rangárvallasýslu. Stakir viðburðir koma ekki til greina við úthlutun.
Umsóknir ásamt greinargóðri kynningu sendist á oddvita héraðsnefndar margretharpa@ry.is fyrir 1. apríl 2023.
Nánari upplýsingar gefur Margrét Harpa á netfanginu margretharpa@ry.is eða í síma 868-2543