18. apríl 2024
Fréttir

Handverkssýning eldri borgara í Rangárvallasýslu verður haldin í Menningarsalnum á Hellu 27.–28. apríl næstkomandi.
Sýningin stendur frá kl. 13–16 báða dagana og þátttakendur þurfa að koma með muni á sýninguna föstudaginn 26. apríl frá kl. 13–16.
Kaffi og meðlæti verður til sölu á sýningunni og kostar 2000 kr fyrir fullorðna en frítt er fyrir börn að 10 ára aldri.