Fundarboð - Töðugjaldafundur með íbúum 10. júlí

Árlega kemur eitt hverfi á Hellu að undirbúningi Töðugjalda og í ár eru það:

ÁRTÚN, NESTÚN, SELTÚN, BOGATÚN, GUÐRÚNARTÚN, NES OG HELLUVAÐ.

Íbúar hverfisins eru boðaðir til fundar 10. júlí 2024 kl. 20 í námsveri Rangárþings ytra, Suðurlandsvegi 1–3.

Gengið er inn í námsverið bakvið Miðjuna, við hliðina á Féló. Hvetjum sem flest til að mæta, taka þátt og hjálpa okkur að halda upp á 30 ára afmæli Töðugjalda!

Nánari upplýsingar veitir markaðs- og kynningafulltrúi á osp@ry.is

Ef aðila utan þessa hverfis langar að taka þátt er það að sjálfsögðu velkomið og öllum áhugasömum verður tekið fagnandi.

 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?