16. desember 2021
Fréttir
Umsækjendur um starf framkvæmdastjóra Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs. voru 9 talsins en umsóknarfrestur rann út þann 10. desember s.l. Verið er að vinna úr umsóknum og umsækjendur verða boðaðir í viðtöl í næstu viku.
Í stafrófsröð
Árni Ólafsson
Einar Bárðarson
Guðmundur Einar Jónsson
Hannes Örn Kjartansson
Jón Þór Backman
Ómar Sigurðsson
Sigrún Þórarinsdóttir
Víðir Reyr Þórsson
Einn óskar nafnleyndar
Reiknað er með að niðurstaða liggi fyrir í desember og að framkvæmdastjóri taki til starfa á nýju ári.