Björgunarhundasveit Íslands æfir í Rangárþingi ytra um helgina

Björgunarhundasveit Íslands heldur helgarnámskeið 16.–18. ágúst í Rangárþingi ytra og mun hópurinn gista í Brúarlundi.

Æfingar munu fara fram í Réttarnesi og í skógræktarreitnum vestan við Réttarnes upp að veginum.

Einnig verður æft á svæðinu við Hvamm og í hrauninu hjá prestsetrinu þar nærri.

Um er að ræða úttektarpróf og æfingar frá föstudagsmorgni fram á seinnipart sunnudags.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?