13. maí 2022
Fréttir
Kjörfundur 14. maí 2022 í Rangárþingi ytra.
Kjörfundur vegna sveitarstjórnarkosninga í Rangárþingi ytra 14. maí 2022 verður haldinn í Grunnskólanum á Hellu og hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 22:00.
Vakin er athygli kjósenda á skyldu til að sýna persónuskilríki ef kjörstjórn óskar þess.
Talning atkvæða hefst á sama stað að kjörfundi loknum.
Athugið breyttan inngang vegna framkvæmda á skólalóð,
sjá mynd.
Yfirkjörstjórn Rangárþings ytra,
Heiðrún Ólafsdóttir
Jóhanna Lilja Þrúðmarsdóttir
Guðmundur Jónasson