Gjaldskrá fyrir Rangárljós


1. Almennt

Verðskrá þessi gildir fyrir starfssvæði Rangárljóss í Rangárþingi ytra.
Virðisaukaskattur bætist við gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari miðað við gildandi
reglur á hverjum tíma.

2. Áskriftargjald

Mánaðarlegt áskriftargjald er kr. 3.190 + vsk.

3. Gjöld fyrir breytingar

Ef færa þarf heimtaug notanda í kerfis miðjum Rangárljóss frá einu porti yfir í
annað, t.d. frá fjarskiptabúnaði fjarskiptafélags yfir í fjarskiptabúnað annars félags
er innheimt breytingagjald að upphæð 4.175,- auk vsk og greiðir það fjarskiptafélag
gjaldið sem óskar eftir breytingunni.


4. Tengigjald nýrra notenda

Fyrir nýja tengingu greiðist einskiptisgjald kr. 240.000 + vsk auk því sem næst
raunkostnaðar við að leggja ljósleiðara frá stofnstreng að tengistað.
Heimilt er að jafna út kostnaði í hverfum þannig að hver tengistaður greiði sama
gjald óháð raunkostnaði.


5. Leiga á ljósþráðum innan kerfisins

Fjarskiptafélögum stendur til boða að leigja ljósþræði til annarra nota en tengingu
endanotenda. Vegalengdir miðast við loftlínu á milli staða og miðast gjaldtaka við
hvern hafinn kílómeter. Miðað er við að ekki þurfi að gera breytinga á streng. Ef
gera þarf breytingar þá bætist tíma- og tækjakostnaður í samræm við við umfang
breytinga. Að öðru leiti er ekkert stofn- eða upphafsgjald vegna leigu. Öll verð eru
á án vsk.
Leigugjald fyrir ljósleiðaraþræði í streng er eftirfarandi:
Fjöldi þráða kr./km á mánuði
            1       7.353,-
            2       9.190,-
            3       11.028,-
            4       12.866,-

 

6. Aðstöðuleiga í tækjarými á Hellu

Fjarskiptafélögum sem nýta sér aðgangskerfi Rangárljóss stendur til boða að leigja
aðstöðu fyrir fjarskiptabúnað í tækjarými á Hellu skv. neðan greindu:
1 skáparými 48.131,- pr mánuð auk vsk
½ skáparými 24.065,- pr. mánuð auk vsk
Rangárljós getur útvegað aðgang að 230V rafmagni og greiðir leigjandi fyrir því
sem næst raunnotkun á rafmagni.

 

7. Önnur ákvæði.

Rangárljós leggur ljósleiðara að tengistað en útvegar ekki endabúnað til notkunar.
Ekki er gert ráð fyrir að farið verði í tengingar í sumarhúsahverfum nema náist um
60% þátttaka í hverfinu.
Stofngjöld verða innheimt þegar framkvæmdir byrja en heimilt er að dreifa greiðslu
þeirra í 8 mánuði.

 

 

Gjaldskrá þessi var samþykkt af sveitarstjórn Rangárþings ytra 22.11.2023 og tekur þegar
gildi 1.1.2024 og fellur þá úr gildi eldri gjaldskrá frá 13.1.2022.
f.h. Rangárljóss
22. nóvember 2023
_________________________
Jón G Valgeirsson

 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?