Ræst verður frá syðri bollanum við bakka Rangár kl. 16:00 þann 16. ágúst næstkomandi!
 
3 vegalengdir í boði - nánar auglýst síðar
- Skemmtiskokk fyrir allan aldur - um 1 km innan Hellu
- Lengra skemmtiskokk - um 5 km innan Hellu, í gegnum
Gaddstaðaflatir og meðfram Rangá
- 10 km hlaup - innan Hellu, um Aldamótaskóg og meðfram Rangá
 
Hella er umlukin frábærum svæðum til útivistar! Töðugjaldahlaupið er kjörin leið til að kynnast þessum náttúruperlum og viðra sig svolítið í leiðinni.
Allir þátttakendur fá verðlaunapening og hressingu að hlaupi loknu.
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?