10. fundur 10. mars 2026 kl. 09:00 - 10:20 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Margrét Harpa Guðsteinsdóttir
  • Eggert Valur Guðmundsson
  • Ingvar Pétur Guðbjörnsson
Starfsmenn
  • Jón G. Valgeirsson
  • Tómas Haukur Tómasson
Fundargerð ritaði: Jón G. Valgeirsson sveitarstjóri

1.Viðhalds og framkvæmdaáætlun 2024-2026

2408032

Tómas Haukur fór yfir stöðu viðhalds- og framkvæmdamála vegna ársins 2026.

Búið er að ráða verkefnastjóra vegna framkvæmda á Laugalandi og vinna hafin. Framkvæmdaáætlun verður lögð fram á næsta fundi nefndarinnar. Niðurstaða verðkönnunar á gatnahönnun í Bjargshverfi er væntanleg seinni partinn í mars. Undirbúningur er í gangi við að uppfæra leikvelli á Hellu og úrbætur verða gerðar í sumar. Undirbúningur er í gangi varðandi viðhald eigna og gatna. Upplýst er að verið er að vinna áfram að aðgengismálum við Fossabrekkur.

2.Stækkun skólasvæðis Hellu 2.áfangi

2209059

Tómas Haukur fór yfir stöðu framkvæmda vegna byggingu á 2. áfanga við stækkun Grunnskólans á Hellu. Framkvæmdum innanhúss verður að mestu lokið um páska. Samhliða verður unnið að bráðabrigða leikskólalóð og öðrum lóðafrágangi.

Gert er ráð fyrir að leikskólinn geti hafið störf í nýju húsnæði 14. apríl og mötuneytið samhliða. Jafnframt er gert ráð fyrir listgreinastofa grunnskólans geti flutt á svipuðum tíma.

3.Nýbygging Leikskóla 3. áfangi

2402047

Tómas Haukur fór yfir stöðu framkvæmda vegna byggingu á leikskóla á Hellu.

Lögð fram niðurstaða útboðs fyrir burðarvirki leikskólans. Lagt til að ganga að tilboði Steypustöðvarinnar sem lægstbjóðanda að fjárhæð kr. 366.732.289 sem er um 3% yfir kostnaðaráætlun. Sveitarstjóra falið að ganga frá samningi við lægstbjóðanda. Miðað er við að verkþætti Steypustöðvarinnar verði lokið í lok ágúst.

4.Íþróttavöllur Hellu færsla.

2404137

Tómas Haukur fór yfir stöðu framkvæmda við gervigrasvöllinn á Hellu.

Búið er að klæða utan á lausar kennslustofur við völlinn sem nýttar verða fyrir búnings- og sturtuaðstöðu. Farið verður í innanhússframkvæmdir þegar starfsemi skólans er flutt úr húsnæðinu. Með vorinu verður farið í að bæta innfyllingu fyrir FIFA úttekt og annan yfirborðsfrágang á svæðinu í kringum völlinn.

5.Aðstaða fyrir frjálsar 2026 Hellu

2603007

Lögð fram fyrirspurn frá formanni Umf. Heklu um aðstöðumálum fyrir frjálsar íþróttir fyrir næsta sumar.

Tómas fór yfir ákveðnar hugmyndir að bráðabrigðalausnum. Ákveðið að boða stjórn Umf. Heklu á fund nk. mánudag til að fara yfir málið.

6.Tæming rotþróa í RY

2506044

Forstöðumaður eigna- og framkvæmdasviðs fór yfir stöðu málsins.

Útboð um tæmingu rotþróa í Rangárþingi ytra og Rangárþingi eystra fer í auglýsingu á næstu dögum og verða opnuð 16. apríl n.k.

7.Umferðarmál 2025. Staða mála

2505035

Gagnagrunnur
Á fundinn mætir Jón Ragnar Örlygsson, aðstoðarmaður skipulagsfulltrúa, og kynnti stöðu á gagnagrunni á umferðarmerkingum o.fl. á Hellu sem unnið hefur verið aðmeð EFLU. Nefndin leggur áherslu á að hægt verði að nýta grunninn í takt við ákvarðanir nefnda málaflokksins sem fyrst.

Fundi slitið - kl. 10:20.