245. fundur 27. mars 2025 kl. 08:00 - 08:15 Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Eggert Valur Guðmundsson aðalmaður
  • Nanna Jónsdóttir aðalmaður
  • Tómas Birgir Magnússon aðalmaður
Starfsmenn
  • Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
  • Jón G. Valgeirsson sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Jón G. Valgeirsson sveitarstjóri
Nanna og Tómas Birgir sátu fundinn í fjarfundi

1.Framkvæmdastjóri 2025 Sorpstöð Rang.

2502028

Lagt fram matsblað í kjölfar viðtala við umsækjendur vegna ráðningar á framkvæmdastjóra Sorpstöðvar Rangárvallasýslu. Tíu sóttu um starfið en tveir voru boðaðir í viðtal.

Stjórn leggur til að Víðir Reyr Þórsson verði ráðinn í starf framkvæmdastjóra og formanni stjórnar falið að ganga frá ráðningarsamningi við hann. Gert er ráð fyrir að Víðir Reyr hefji störf þann 1. apríl n.k.

Samþykkt samhljóða.

Stjórn þakkar Einar Bárðarssyni núverandi framkvæmdastjóra fyrir samstarfið og óskar honum velfarnaðar í sínum störfum í framtíðinni.
Næsti stjórnarfundur verður mánudaginn 7. apríl n.k. kl. 8:15.

Fundi slitið - kl. 08:15.