Nú er hægt að panta bókina "Hella - þorp í þjóðbraut" en áætlað er að hún fari í sölu nú í lok september.

Um bókina:

Hvernig er fræjum þorps sáð í sveit og hvað ræður því hvar það sprettur? Hverjir taka sér þar búsetu og hvaðan ber þá að garði? Í bókinni Hella – þorp í þjóðbraut sem nú lítur dagsins ljós er ef til vill að finna svör við þessum spurningum og ýmsum fleirum. Þar rekur Ingibjörg Ólafsdóttir sagnfræðingur fyrstu ár byggðarinnar á Hellu og þær aðstæður sem þorpið sprettur úr.

Í stuttu máli er rakin saga þeirra er fyrstir bjuggu í þorpinu, fyrstu
húsum gerð nokkur skil sem og sögu jarðanna er Hella byggist úr. Að auki
er nokkuð fjallað um sögu Rangárvallahrepps en Hella tilheyrði honum
allt til ársins 2002. Auk sagnfræðilegrar yfirferðar byggir bókin um
margt á frásögnum heimamanna sem ljá henni litbrigði.

Bókina prýða meira en tvöþúsund myndir sem safnað hefur verið úr ýmsum áttum, jafn frá einstaklingum og úr stærri söfnum. Um tvöhunduð myndir koma úr safni þeirra Stolzenwald feðga sem tóku mikið af myndum á Hellu á sinni tíð.

Hér gefur að líta sögu þorps sem mörgum er kært og reynist fjölþættari en margan grunar.

Ef þú vilt tryggja þér eintak þá fyllir þú út eyðublaðið hér að neðan og smellir á senda. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið ry@ry.is eða hafa samband í síma: 4887000.

Haft verður samband þegar bókin er tilbúin til dreifingar.


Bókin er annarsvegar gefin út sem harðspjalda bók og hinsvegar sem vöndið kilja með innábrotum. Verð: Kilja 9.900 kr Harðspjald 17.900 kr



Sendingarkostnaður greiðist af móttakanda.
Ef þú vilt fleiri en eitt eintak þá seturðu það inn hér.
captcha
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?