Tengill á reglurnar sem pdf-skjal

1. gr.
Almennt


Reglur þessar eru settar til að tryggja jafnræði og faglega umfjöllun við úthlutun lóða. Skipulags- og
umferðarnefnd Rangárþings ytra annast úthlutun byggingarlóða í sveitarfélaginu í umboði
sveitarstjórnar skv. vinnureglum þessum. Skipulags- og umferðarnefnd hefur fullnaðarafgreiðsluvald til
úthlutunar lóða sem eru í samræmi við gildandi aðal- og deiliskipulag. Leggja ber aðrar umsóknir um
lóðir og vilyrði fyrir lóðum fyrir sveitarstjórn til afgreiðslu. Skipulags- og byggingarfulltrúi, eða staðgengill
hans, annast samskipti við umsækjendur og leggur fram tillögur um úthlutun lóða til staðfestingar í
skipulags- og umferðarnefnd í samræmi við reglur þessar.


2. gr.
Auglýsing


Allar lóðir sem skipulagðar eru skulu auglýstar á fjölbreyttan/áberandi hátt og birtar á kortasjá
sveitarfélagsins áður en þeim er úthlutað í fyrsta sinn, sjá þó 10. gr. Umsóknarfrestur skal ekki vera
skemmri en tvær vikur eftir fyrstu auglýsingu. Áður en byggingarlóðir eru auglýstar í fyrsta sinn á
opinberum vettvangi skal skipulags- og umferðarnefnd samþykkja umræddar lóðir lausar til umsóknar
og með hvað hætti þær skulu auglýstar. Lóðir sem koma til endurúthlutunar skulu auglýstar lausar til
úthlutunar á heimasíðu sveitarfélagsins. Listi yfir lausar lóðir skal ávallt liggja frammi á heimasíðu
sveitarfélagsins.


3. gr.
Umsóknir


Umsóknir skulu berast skipulags- og byggingarfulltrúa á rafrænum eyðublöðum sem nálgast má á
heimasíðu sveitarfélagsins www.ry.is. Þær lóðir sem lausar eru hverju sinni birtast undir Lóðir til
úthlutunar á kortasjá sveitarfélagsins. Ef þær upplýsingar sem tilskyldar eru á umsóknareyðublaði eru
ekki veittar telst umsókn ógild. Komi í ljós eftir lóðarúthlutun að lóðarhafi hafi veitt rangar og/eða
villandi upplýsingar er heimilt að afturkalla lóðarúthlutun. Í umsókn skulu umsækjendur tilgreina með
glöggvum hætti byggingaráform sín og framkvæmdahraða. Umsóknir skulu berast í síðasta lagi fimm
sólarhringum fyrir fund skipulags- og umferðarnefndar. Fundardagatal skipulags- og umferðarnefndar
er að finna á heimasíðu sveitarfélagsins.


4. gr.
Kröfur til umsækjenda


Eftirfarandi kröfur eru gerðar til umsækjenda og/eða umsókna:

  • Umsóknir teljast því aðeins gildar að þær hafi borist á rétt útfylltum, þar til gerðum eyðublöðum,
    áður en auglýstur umsóknarfrestur rennur út.
  • Umsækjendur skulu vera fjárráða.
  • Umsækjendur skulu vera í fjárhagslegum skilum við sveitarfélagið.
  • Hafi umsækjandi þegar fengið úthlutað lóð án þess að hafa hafið framkvæmdir á henni, kemur
    viðkomandi ekki til greina við úthlutun á nýjum lóðum í sama notkunarflokki

 

5. gr
Úthlutunaraðferðir


Ef fleiri en ein umsókn er um ákveðna byggingarlóð á þeim tíma, mun formaður skipualgs- og
umferðarnefndar draga um þá röð umsækjenda viðkomandi byggingarlóðar í votta viðurvist, þ.e.
annarra nefndarmanna, skipulags- og byggingarfulltrúa og/eða fundarritara. Ef ástæða þykir til er
skipulags- og umferðarnefnd heimilt að halda sérstakan fund til útdráttar.
Þegar um útdrátt er að ræða getur umsækjandi einungis fengið einni lóð úthlutað hverju sinni.
Ef lóð gengur ekki út eftir fyrstu auglýsingu lóðar gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær.


6. gr.
Staðfestingargjald


Til þess að úthlutun öðlist gildi skal umsækjandi greiða að lágmarki 50% af áætluðu gatnagerðargjaldi
samkvæmt samþykkt um byggingargjöld í Rangárþingi ytra. Mögulegt er að semja um greiðslufrest, sbr
ákvæði í samþykkt um byggingargjöld í Rangárþingi ytra, en þó skulu 5% gatnagerðargjalds ávallt greidd
innan 30 daga eftir gjalddaga en að öðrum kosti fellur úthlutunin niður sjálfkrafa og án viðvörunar. Þessi
5% gatnagerðargjalds eru óafturkræf. Byggingarleyfi skal ekki veitt fyrr en gatnagerðargjald hefur verið
greitt eða um það samið.


7. gr.
Einbýlishúsalóðir


Einstaklingar hafa að jafnaði forgang við úthlutun einbýlishúsalóða enda uppfylli umsóknir þeirra skilyrði
reglna þessara. Þeim einbýlishúsalóðum sem ekki ganga út til forgangsaðila, er heimilt að úthluta til
annarra sem leggja fram fullgildar umsóknir.


8. gr.
Raðhús, parhús og fjölbýlishús


Við úthlutun lóða fyrir raðhús, parhús og fjölbýlishús eru allar umsóknir að jafnaði jafnréttháar. Við
úthlutun lóða til framkvæmdaraðila skal taka tillit til þess hvort viðkomandi hafi staðið við
skuldbindingar sínar vegna fyrri úthlutana, þar með talið að eðlileg framvinda hafi verið í
byggingarframkvæmdum.


9. gr.
Aðrar lóðir


Við úthlutun lóða, annarra en íbúðarhúsalóða skulu umsækjendur tilgreina með glöggum hætti
byggingaráform sín og framkvæmdahraða. Við úthlutun lóða til framkvæmdaraðila skal taka tillit til þess
hvort viðkomandi hafi staðið við skuldbindingar sínar vegna fyrri úthlutana, þar með talið að eðlileg
framvinda hafi verið í byggingarframkvæmdum.


10. gr.
Undanþága frá auglýsingu


Sveitarstjórn hefur heimild til að veita vilyrði fyrir lóðum, án undangenginna auglýsinga, þegar sótt er
um lóðir innan skipulagðra svæða eða á óskipulögðum svæðum. Endanleg úthlutun getur þó ekki farið
fram fyrr en að lokinni skipulagsvinnu, sé hennar þörf og að fengnu samþykki sveitarstjórnar.


11. gr.
Frestur til að hefja framkvæmdir


Við úthlutun lóða skal frestur lóðarhafa til að hefja framkvæmdir á lóðinni vera 8 mánuðir frá því að
hverfi eða hverfishluti er tilbúinn, þ.e. þegar stofnkerfi lagna við viðkomandi lóð er tilbúið. Framlenging
á frestinum kemur því aðeins til greina að lóðarhafi sæki um slíkt áður en fresturinn rennur út og geti
fært fram rök fyrir slíkri beiðni. Fresturinn framlengist þó aldrei lengur en í 4 mánuði.
Ef lóð er ekki byggingarhæf við úthlutun gildir dagsetning sérstakrar tilkynningar byggingarfulltrúa til
lóðarhafa um að lóðin sé orðin byggingarhæf. Úthlutun fellur úr gildi ef frestur rennur út án þess að
lóðarhafi hefji byggingarframkvæmdir eða setji fram rökstudda beiðni um lengri frest.
Tilkynna skal lóðarhafa í ábyrgðarbréfi eða með öðrum sambærilegum hætti, s.s. á island.is, að úthlutun
sé fallin úr gildi. Endurgreiðslu staðfestingargjalds skal vera háttað skv. ákvæðum í samþykkt um
byggingargjöld í Rangárþingi ytra.


12. gr.
Frágangur lóðar


Lóðarhöfum er skylt að hlíta þeim tímamörkum að hús skuli fullgert að utan, lóð grófjöfnuð í rétta hæð,
rykbundin, gróðri komið fyrir og gengið frá mörkum við aðrar lóðir, götur og opin svæði innan 3ja ára
frá úthlutun lóðar. Við mat á umsóknum skal taka mið af því hvort ætla megi að aðilar geti lokið
framkvæmdum á tilsettum tíma.


13. gr.
Útgáfa lóðarleigusamnings


Lóðarleigusamningur verður ekki gerður fyrr en eftirfarandi skilyrðum hefur verið fullnægt:

  • Öll gjöld hafi verið greidd til sveitarfélagsins eða um þau samið.
  • Eignaskiptayfirlýsing skal liggja fyrir, sbr. 16. gr. laga um fjöleignarhús nr. 26/1994 með síðari
    breytingum.


Lóðarhafa er óheimilt að framselja leigurétt sinn fyrr en lóðarleigusamningur gefur verið gerður og
honum þinglýst. Lóðarhafi ber kostnað af þinglýsingu lóðarleigusamnings.


14. gr.
Meðferð umsókna


Við alla afgreiðslu umsókna og meðhöndlun þeirra skal gæta jafnræðis og samræmis skv. 11. gr.
stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Farið skal með allar persónulegar upplýsingar sem fram koma í umsókn
sem trúnaðarmál. Reglur upplýsingalaga nr. 50/1996 gilda þó um þau efnisatriði sem lögin heimila að
séu upplýst. Að lokinni úthlutun skal öllum umsækjendum svarað skriflega.


Samþykkt á fundi sveitarstjórnar Rangárþings ytra, 8. janúar 2025 og tóku gildi 23. janúar 2025.
______________________________
Jón G. Valgeirsson, sveitarstjóri.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?