-
Miðvikudagur, 15. Maí 2013 - 10:05Listakona á heimaslóð - Tónleikar í Selinu Stokkalæk
Glódís Margrét Guðmundsdóttir píanóleikari mun halda tónleika í Selinu á Stokkalæk á annan í Hvítasunnu, hinn 20. maí nk. Þar mun hún leika verk sem hún hyggst flytja í píanókeppni Norðurlandanna í Danmörku nú í júní og síðar einnig á tónlistarhátíðinni Casalmaggiore Music Festival á Ítalíu.
-
Þriðjudagur, 14. Maí 2013 - 12:18Leikskólinn á Laugalandi fær 1,2 milljóna króna styrk frá Sprotasjóði
Leikskólinn á Laugalandi hefur hlotið 1,2 milljónir í styrk frá Sprotasjóði. Styrkinn á að nota til að þróa starf leikskólans næsta vetur. Verkefnið gengur út á það að spinna saman ART, upplýsingatækni og þróa nýtt sýnilegra námsmat barnanna. Framundan er mjög spennandi skólaár bæði fyrir nemendur og starfsfólk.
-
Þriðjudagur, 14. Maí 2013 - 11:30Sorpstöð Rangárvallasýslu auglýsir vor- og sumarhreinsun
Dagana 20. maí - 9. júní 2013 verður hreinsunarátak í sveitum á vegum Sorpstöðvar Rangárvallasýslu. Gámar verða á tímabilinu staðsettir á eftirtöldum stöðum, þ.e. á „gömlu“ gámastæðum þessara staða: Skógum, Heimalandi, A-Landeyjum, V-Landeyjum, Fljótshlíð, Bakkabæjum, Rangárvöllum (vegamót Gunnarsholtsvegar og Þingskálavegar), Þykkvabæ, Hellu og Landvegamótum.


























